Langtímaárangur

Markmið okkar er að aðstoða við að ná langtíma árangri í þínum rekstri.

Viðurkenndar leiðir

Við stundum enga tilraunastarfsemi með þinn rekstur. Við vinnum eftir viðurkenndum leiðum.

Traustir samstarfsaðilar

Við vinnum með fyrirtækjum sem hafa áratuga reynslu og þekkingu.

Um Hospitality.is

Hospitality.is er ungt fyrirtæki en með mikla reynslu og þekkingu.

Stefán er með Swiss Higher Diploma in Hotel and Restaurant Management  frá  Swiss School of Tourism and Hospitality og B.A. í International Hospitality Management  frá  Queen Margaret University.

Við höfum tekið þátt í að opna hótel, setja upp bókunarkerfi, tekjuáætlanir, verkferla, starfsmannaþjálfun, mörkun (branding), endurmörkun (rebranding) og séð um samfélagsmiðla fyrir hótel með mjög góðum árangri.

Reynsla okkar og þekking gerir okkur kleift að aðstoða þig með afgerandi hætti og gera gististaðinn þinn leiðandi og arðbæran.

Í gegnum árin höfum við náð að búa til sambönd við aðila í ferðaþjónustu víða um heim og náð góðum árangri.

Núna langar okkur til að aðstoða þig til að ná sama árangri.


Hótelráðgjöf hótelstjórnunarkerfi ráðgjöf Hospitality.is

“Framúrskarandi fyrirtæki eru byggð af fólki sem hættir aldrei að hugsa um leiðir til að bæta fyrirtækið.

“J. Willard “Bill” Marriott

Hótelráðgjöf

Þetta gerum við fyrir þig!

Hótelráðgjöf ráðgjöf Hospitality.is

Hótelráðgjöf

Rekstur gististaða er langhlaup og við leggjum áherslu á að vinna vel og vandlega með langtíma-markmið í huga. 

Hótelráðgjöf tekjustýring Hospitality.is

Tekjustýring

Við vinnum út frá styrkleikum gististaðarins til að gera hann leiðandi í verðlagningu. Framlegð er í forgangi þegar kemur að tekjustýringu.

Hótelráðgjöf sölurásir ferðaheildsalar Hospitality.is

Uppsetning bókunarkerfa / Fjölgun sölurása

Allar hótelkeðjur og stærri hótel eru með fjöbreyttar dreifileiðir til að selja herbergin sín. Þetta geta allir gisitstaðir gert því stærð skiptir ekki máli.

Hótelráðgjöf vefsíðugerð Hospitality.is godo bemar beds 24

Heimasíðugerð

Allir gististaðir eiga að vera með heimasíðu. Hún styrkir ímynd gististaðarins og er mikilvægur hlekkur í að fá beinar bókanir. Vefsíðurnar eru settar upp með leitarvélabestun (SEO) í huga.

Hótelráðgjöf ráðgjöf Hospitality.is

Sjálfvirkir tölvupóstar

Persónulegt samband við gesti er mikilvægt. Sjálfvirkir tölvupóstar til gesta eru mikilvægt tæki til þess.

Hótelráðgjöf Hótelstjórnunarkerfi Hospitality.is

Hótelstjórnunarkerfi

Við veitum ráðgjöf í vali á hótelstjórnunarkerfi fyrir þinn rekstur.

Bókunarvélar-Hospitality

Bókunarvélar

Það skiptir máli að vera með öfluga bókunarvél á heimasíðunni. Við bjóðum upp á góðar lausnir sem henta þér.

Hótelráðgjöf Channel Manager Hospitality.is

Rásastýringakerfi – Channel Manager

Ef þú vilt fjölga bókunarleiðum en hótelstjórnunar-kerfið leyfir það ekki, þá veitum við ráðgjöf varðandi rásastýringakerfi.

Hótelráðgjöf ráðgjöf Hospitality.is

Margt fleira

Þetta er ekki það eina sem við gerum. Ef þig vantar aðstoð, þá kostar ekkert að heyra í okkur.

Hótelráðgjöf ráðgjöf Hospitality.is

Faglegt ferli alla leið

Við leggjum mikla áherslu á faglegt ferli alla leið þegar kemur að gestum.

Samskipti við gestinn byrjar ekki þegar hann mætir á hótelið og endar ekki þegar hann fer. Það byrjar miklu fyrr eða þegar hann byrjar bókunarferlið og endar ekki fyrr en hann segir frá dvölinni og/eða skrifar umsögn.

Fyrstu kynni skipta miklu máli. Sérstaða skiptir máli og allir gististaðir hafa sýna sérstöðu. 

Með sérstöðu og straumlínulagaða þjónustu nærðu að fanga sem flesta gesti.

Þinn ávinningur

Hærri nýting, meðalverð og tekjurmeð hnitmiðaðri tekju- og sölustýringu.

Notkun fjölbreyttari dreifileiða til að hámarka tekjur af öllum mörkuðum.

Betri upplifun gesta og fleiri jákvæðar umsagnir.

Betra aðhald í útgjöldum til að ná betri rekstrarniðurstöðu.

Hærri markaðshlutdeild en samkeppnisaðilarnir.

Viðhalda góðum samskiptum við viðskiptavini og aukin tryggð.

Bætt framsetning gististaðarins þar sem það skiptir máli.

Meiri straumlínulögun í rekstrinum, lægri kostnaður.

“Það er viska að hagnast á mistökum gærdagsins. Það er banvænt að hanga á sigrum gærdagsins. Þú takmarkar þig. Framtíðin á að stækka. Reynsla gærdagsins er grunnurinn sem þú byggir á í dag.”

Conrad Hilton, stofnandi Hilton Hotels

Samstarfsaðilar

Við vinnum með fjölda fyrirtækja en hér fyrir neðan er úrval af þeim bestu í sínu fagi.

Mini Hotel PMS – Hótelstjórnunarkerfi

Mini Hotel PMS er einfalt hótelstjórnunarkerfi sem hentar alveg einstaklega vel fyrir smærri hótel, gistiheimili og heimagistingu.

Simplex – Bókunarvél

Öflug bókunarvél fyrir heimasíðu hótelsins. 

Hægt er að tengja hana við Google, TripAdvisor og Trivago til að fá fleiri beinar bókanir og halda þóknunarkostnaði í lágmarki.

Bookonlinenow – Bókunarvél

Öflug bókunarvél fyrir heimasíðu hótelsins. 

Hægt er að tengja hana við Google, TripAdvisor og Trivago til að fá fleiri beinar bókanir og halda þóknunarkostnaði í lágmarki.

Fyrir þá gististaði sem nota rásastýringakerfi (Channel Manager).

Siteminder – Rásastýringakerfi

Rásastýringakerfið (Channel Manager) frá Siteminder er einstaklega hröð og nákvæm lausn til að tengjast mörgum hótelbókunarsíðum. Það gerir gististöðum kleift að samstilla gögn milli þess og hundruða OTA, GDS og eigin vefsíðu.

Fyrir þá gististaði sem vilja ná sem mestri dreifingu í sölu herbergja.